Fræðsla

Að finna bestu heimildirnar krefst leikni í upplýsingaleit. BUHR rækir hlutverk sitt m.a. með því að stuðla að upplýsingalæsi innan HR með markvissri fræðslu og upplýsingaráðgjöf til nemenda, kennara og annars starfsfólks. 

Markmið
  • Auka færni og sjálfstæði notenda BUHR við að afla sér upplýsinga og heimilda og styrkja þá með því í námi og starfi við HR
  • Þjálfa með einstaklingum færni sem auðveldar þeim að tileinka sér nýja þekkingu og standast vaxandi kröfur atvinnulífsins um símenntun (e. lifelong learners)
  • Kynna bókasafnið og rafrænan safnkost þess í því skyni að hámarka nýtingu hans og gagnsemi fyrir starfsemi HR

Fræðsla BUHR hefur að leiðarljósi að nemendur sýni
  • Metnað til að sækja sér ávallt bestu upplýsingar sem henta þeim viðfangsefnum sem fyrir liggja hverju sinni
  • Heilindi til að vinna með gögn og upplýsingar á ábyrgan og faglegan hátt
  • Getu til sjálfstæðra vinnubragða

Leiðbeiningar um efni sem snertir fræðslu safnsins, upplýsingalæsi og heimildaleitir eru hér til vinstri.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica