Hvar eru heimildirnar?

Til að finna efni í safni Háskólans í Reykjavík (BUHR) ferðu í skrár hér til hægri.

  • Gegnir - bókasafnskerfi BUHR. Þar finnur þú upplýsingar um bækur, tímarit o. fl. hjá BUHR og öðrum íslenskum söfnum. Í Gegni er hægt að skrá sig inn þannig að þú getur haft yfirlit yfir eigin útlán, framlengt láni og tekið frá gögn
  • Tímarit í áskrift A - Ö. Ef þú ert að leita að tilteknu tímariti eða tímaritsgrein ferðu í tímaritalistann A - Ö. Listinn inniheldur öll tímarit sem safnið kaupir, prentuð og rafræn, íslensk og erlend
  • Gagnasöfn. Ef þú ert að leita að efni ferðu í Gagnasöfn. Aðgangur er mismunandi og fer eftir samningum safnsins við útgefendur. Aðgangur getur verið bundinn við aðgangsorð, við allar tölvur Háskólans í Reykjavík eða allar tölvur á Íslandi. Gagnasöfnum í áskrift fylgir tákn sem segir til um hvernig aðgangi er háttað:
       [+] aðgengilegt frá neti HR (IP-tölur) og í fjaraðgangi
       [*] aðgangsorð. Hér sækir þú lykilorð að gagnasöfnunum (og skráir þig inn með HR-lykilorðunum þínum)
       [#] landsáskrift, allar tölvur á Íslandi
       [~] einungis aðgengilegt frá neti HR (IP-tölur)
       [!] einungis aðgengilegt í bókasafninu

    Gagnasöfnin eru keypt fyrir öll fræðasvið skólans og efni þeirra er fjölbreytt. Veldu gagnasöfn sem henta leitinni. Yfirleitt er í boði góð hjálp varðandi leitir á vefsíðum gagnasafnanna. Ef þú þarft frekari aðstoð hafðu þá samband við starfsfólk í afgreiðslu, hafðu samband við "cybrarian" eða pantaðu viðtalstíma hjá bókasafns- og upplýsingafræðingnum

Leiðbeiningar um hvernig þú finnur efni í bókasafninu eru hér til vinstri.

Hér má opna leiðbeiningar um leit að heimildum (PDF).

Tækjastikan í vafrann - öll gögn BUHR innan seilingar


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica