Þjónusta
BUHR býður viðskiptavinum sínum alla almenna bókasafns- og upplýsingaþjónustu, s.s. útlán, millisafnalán og upplýsingaleitir, auk sértækari þjónustu. Árvekniþjónusta er mikilvægur liður í starfseminni, en henni er ætlað að auðvelda viðskiptavinum að fylgjast með því sem er efst á baugi á sérfræðisviði viðkomandi. Má þar nefna upplýsingar um nýtt efni hjá BUHR, rafrænar sendingar efnisyfirlita valinna tímarita og aðstoð við uppsetningu geymsluleita í gagnasöfnum. Þá má nefna að starfsmenn BUHR sjá um bókapantanir fyrir starfsmenn HR vegna kennslu og rannsókna. Þjónusta BUHR er einkum ætlum nemendum og starfsmönnum HR. Öllum er þó velkomið að heimsækja safnið á auglýstum afgreiðslutíma og nýta sér aðstöðuna, þjónustuna og safnkostinn þar.
Upplýsingaþjónusta
Kappkostað er að svara skjótt og vel öllum fyrirspurnum sem berast. Öllum er heimilt að senda fyrirspurnir til upplýsingaþjónustunnar, en skilgreindir notendur BUHR (nemendur og starfsfólk HR) hafa forgang.
Heimsæktu okkur
Bókasafns- og upplýsingafræðingur er til viðtals frá 9:00 - 16:00. Leitið upplýsinga í afgreiðslunni.
Hringdu
Síminn í Nauthólsvík er 599 6235 en í Ofanleiti er hann 599 6234.
Sendu tölvupóst
Netfangið okkar er bokasafn@ru.is
