Heimilisföng og afgreiðslutími
Háskólinn í Reykjavík hefur aðsetur að Menntavegi 1 (Nauthólsvík) og í Ofanleiti 2.
Afgreiðslutími skrifstofu Háskólans í Reykjavík:
- Afgreiðslutími skrifstofu í aðalbyggingu (við Nauthólsvík) er frá kl. 08:00-17:00 alla virka daga.
- Afgreiðslutími skrifstofu í Ofanleiti (5. hæð) er frá 08:00-16:00 alla virka daga.
- Símsvörun er alla virka daga frá 08:00-17:00
Heimilisföng:
|
HR - Nauthólsvík Menntavegi 1 101 Reykjavík
|
HR - Ofanleiti Ofanleiti 2 103 Reykjavík |
Nýtt húsnæði Háskólans í Reykjavík við Nauthólsvík
Í janúar 2010 flytjum við stærstan hluta starfsemi okkar í glæsilegt nýtt húsnæði Háskólans í Reykjavík við Nauthólsvík. Að hausti 2010 verða allar deildir skólans komnar í hið nýja húsnæði.
![Séð-frá-Perlunni[1] Nýtt húsnæði HR í Vatnsmýri](http://www.opnihaskolinn.is/media/opni-haskolinn/Sed-fra-Perlunni%5B1%5D.jpg)
Á 20 hektara háskólasvæði HR við Nauthólsvík er háskólabyggingin syðst á svæðinu, um 36.000 fermetrar að stærð. Hægt er að stækka hana um 20.000 fermetra. Gatan niður að HR liggur frá hringtorgi sem mun koma við Loftleiðahótelið. Að þessu hringtorgi mun liggja Flugvallarvegur og síðan ný gata Hlíðarbraut frá Hringbraut. Göngu- og hjólreiðastígur liggur meðfram Öskjuhlíð og niður að háskólanum og Nauthólsvík. Í sveig í kringum háskólabygginguna liggur gata sem kölluð verður Fróðasveigur. Vestan við Fróðasveig er svæði fyrir rannsóknarstofnanir og önnur fyrirtæki í þekkingarstarfsemi, samtals um 20.000 fermetrar. Þar fyrir vestan, nær flugbrautinni, er óskipulagt svæði í eigu HR sem verður skipulagt síðar.
Nyrst á háskólasvæði HR er gert ráð fyrir 200-300 íbúðum fyrir stúdenta, auk leikskóla. Á svæðinu á milli íbúðanna og háskólans er gert ráð fyrir sameiginlegum bílastæðum er þjóna öllu háskólasvæðinu.
Næst Nauthólsvík er veitingastaður sem heitir Nauthóll. Hann ber sama nafn og lítill veitingastaður sem þar stóð í nokkur ár og var vinsæll áningarstaður göngufólks og annarra sem sóttu Nauthólsvík heim. Nafnið er sótt til hóls sem er friðaður og heitir Nauthóll og er suðvestan við háskólabygginguna. Rekstur veitingastaðarins Nauthóls verður í samstarfi við HR og þjónar bæði háskólasamfélaginu og öðrum sem vilja njóta veitinga á þessum frábæra stað.
Háskólinn í Reykjavík mun vinna náið með Reykjavíkurborg við að efla Nauthólsvík enn frekar sem áhugavert útivistarsvæði. Efling og uppbygging Nauthólsvíkur þjónar vel hagsmunum háskólans sem vill leggja áherslu á að háskólinn sé opinn almenningi.
