Umgengni á opnum vinnusvæðum, lesrýmum og hópvinnuherbergjum

  1. Nemendur skulu ganga snyrtilega um lessali og vinnurými
  2. Neysla á mat er með öllu óheimil í lesrými og á bókasafni. Aðeins er leyfilegt að vera með drykki í lokuðum ílátum.
  3. Á opnum vinnusvæðum (á göngum skólans) er leyfilegt að neyta matar og drykkjar. Nemendur eru þó minntir á að henda öllu rusli og matarleifum í ruslafötur.
  4. Sé uppröðun borða og stóla breytt á opnum vinnusvæðum og vinnuherbergjum skulu nemendur ganga frá húsgögnum á þann hátt að uppröðun sé eins að henni var komið.
  5. Farsímar skulu stilltir á þögn þar sem við á.
  6. Nemendur eru minntir á að ekki er leyfilegt að taka frá vinnurými fyrirfram. Þó er nemendum leyfilegt að yfirgefa vinnurými/hópvinnuherbergi um stundarsakir. Um hópvinnuherbergi gilda þær reglur að ekki er ætlast til að nemendur noti þau  lengur en sem nemur tveimur klukkustundum í einu. Hópar hafa forgang í hópvinnuherbergi.
  7. Vinsamlegast takið tillit til þeirra sem sjá um þrif.

Snyrtileg umgengni er forsenda þess að nemendur hafi aðgang að háskólanum með aðgangskorti 24 tíma á sólarhring.


 

Flýtileiðir


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica