Námskeið Stúdentaþjónustu / Atvinnuþjónustu
Öll námskeiðin eru á miðvikudögum kl. 12:15-13:00 nema kvíðastjórnun, hraðlestrarnámskeið og vinnusmiðja fyrir útskriftarnemendur, sjá neðar. Námskeiðin eru nemendum að kostnaðarlausu nema annað sé tekið fram. Nemendur þurfa ekki að skrá sig á námskeiðin nema það sé auglýst sérstaklega.
Lærdómur er fjársjóður sem fylgir eiganda sínum hvert sem hann fer.
Kínverskur málsháttur
Námskeið sem ekki eru í hádeginu á miðvikudögum:
- Stúdentaþjónusta Háskólans í Reykjavík og Hraðlestrarskólinn bjóða í samstarfi upp á sérstök HR-hraðlestrarnámskeið. Nánari upplýsingar um tímasetningu má nálgast á heimasíðu Hraðlestrarskólans.
- Kvíðastjórnun - Náðu tökum á prófkvíðanum. Námskeiðið er í þrjú skipti - nánar auglýst síðar. Nemendur þurfa að skrá sig á námskeiðið.
- Vinnusmiðja fyrir útskriftarnemendur – nánar auglýst síðar.
Munið eftir okkur á Facebook.

