Námskeið Stúdentaþjónustu á vorönn 2012
Öll námskeiðin eru á miðvikudögum kl. 12:15-13:00 nema kvíðastjórnun, hraðlestrarnámskeið og vinnusmiðja fyrir útskriftarnemendur, sjá neðar.Námskeiðin eru nemendum að kostnaðarlausu nema annað sé tekið fram. Nemendur þurfa ekki að skrá sig á námskeiðin nema það sé auglýst sérstaklega. Dagskrá til útprentunar (pdf).
16. janúar
2 vikna hraðlestrarnámskeið
Skráning fer fram á síðu Hraðlestrarskólans: http://www.h.is/hr
18. janúar
Almennt námstækninámskeið Stofa: M 104
Farið er yfir ýmsa þætti námstækni. Fjallað verður um tímaskipulag, minni og minnistækni.
25. janúar
Tímastjórnun og markmiðssetning Stofa: M 104
Farið er yfir helstu þætti tímastjórnunar og markmiðssetningar. Námskeiðið er hugsað fyrir þá nemendur sem vilja bæta sína tímastjórnun með því að gera raunhæfar áætlanir í námi. Nemendum stendur til boða eftirfylgni í framhaldi af námskeiðinu.
Að sækja um háskólanám erlendis Stofa: M 118
Gestir á vegum Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins mæta í heimsókn og svara fyrirspurnum og veita upplýsingar um þau skref sem taka þarf þegar sótt er um nám erlendis. http://www.ask.hi.is/
8. febrúar
Viltu komast á forsetalista? Hvað þarf til? Stofa: M 118
Námskeiðið er byggt á nýlegri meistararannsókn Lóu Hrannar Harðardóttur um
afburðaárangur í háskólanámi. Rannsóknin fjallar um þætti er snerta
afburðaárangur og byggir á viðtölum við nemendur á forsetalista HR – hvað
einkennir þeirra vinnubrögð og viðhorf í námi.
Áfram stelpur! Konur í stjórnun Stofa: M 104
15. febrúar
Lestrar- og glósutækni Stofa: M 104
Farið er í helstu þætti lestrar- og glósutækni.
Hvert stefni ég í framtíðinni? Stofa: M 118
Þúsund km ferðalag hefst með einu skrefi.Fjallað verður um vinnuumhverfi 21. aldarinnar og hvað þarf til að komast í draumastarfið. Hvert er draumstarfið og hvað er starfsánægja?
22. febrúar, 29. febrúar og 7. mars
Kvíðastjórnun - náðu tökum á prófkvíðanum
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur nái tökum á prófkvíðanum og læri leiðir til að stjórna honum. Námskeiðið byggir á hugrænni atferlishyggju, djúpöndun og skipulagi í námi. Fjöldi á námskeiðinu verður takmarkaður og boðið verður uppá eftirfylgni. Nemendur mæta í þrjú skipti.
Umsjón með námskeiðinu hefur Lóa Harðardóttir, náms- og starfsráðgjafi.Vinsamlega tilkynnið þátttöku með því að senda póst á loa@hr.is þar sem tilgreina þarf nafn, deild, netfang og síma.
29. febrúar
Hvað er hamingja? Stofa M 104
14. mars
Prófatækni Stofa: M 118
Að koma vel frá sér þekkingu er ekki síður mikilvægt en að afla hennar. Á námskeiðinu er farið yfir lykilatriði í próftækni bæði varðandi undirbúning fyrir próf og atriði sem gott er að hafa í huga í prófum.
Árangursrík samskipti – samvinna í hópastarfi Stofa: M 104
Samskiptahæfni skiptir sífellt meira máli í atvinnulífinu og samfélaginu öllu. Í könnun sem HR gerði meðal atvinnurekenda nú í febrúar um nauðsynlega færni starfsfólks, kom í ljós að atvinnurekendur töldu mikilvægast að starfsfólk þeirra væri fært í mannlegum samskiptum.
Á námskeiðinu er farið yfir mikilvæg atriði í árangursríkum samskiptum, eins og hvernig leysa má ágreining og ná sameiginlegu markmiði þrátt fyrir ólík sjónarmið. Lögð er áhersla á þætti sem nýtast nemendum vel í hópa- og verkefnavinnu. Þátttakendur taka próf Belbins um hóphlutverk og fá niðurstöðu um hvaða hlutverkum þeir gegna best i hópavinnu.
Frábært námskeið sem vekur mann til umhugsunar. Mjög góður grunnur til þess að geta betur tekist á við hópvinnu.
Umsögn nemanda í HR. Sýnishorn (ppt)
28. mars
Atvinnuþjónusta HR Stofa: M 104
Undirbúningur fyrir atvinnuleit
Hvernig er hægt að undirbúa sig fyrir atvinnuviðtöl, hvað þarf að hafa í huga í viðtalinu.
18. apríl
Slökun og mindfulness Stofa: M 104
Áttu erfitt með að slaka á? Ertu oft að hugsa um margt í einu? Ef þú vilt auka hæfni þína í að festa hugann við það sem þú ert að gera í hvert og eitt skipti er ,,mindfulness” eitthvað fyrir þig! Mindfulness eða vakandi nærvera er leið til að dvelja í núinu í vinsemd og sátt við sjálfan sig, finna og njóta. Mindfulness er hægt að þjálfa með meðvitaðri slökun þar sem við stöldrum við og skoðum hugsanir okkar, skynjun og líðan. Við forðumst að meta, greina, flokka og dæma. Við samþykkjum okkur sjálf. Mindfulness hefur reynst gefa ótrúlega góðan árangur til sjálfsþekkingar og vellíðunar. Rannsóknir sýna einnig að mindfulness getur aukið lífsgæði og lífshamingju, veitt betri heilsu og jafnvel lengra líf.
Prófatækni Stofa: M 118
Að koma vel frá sér þekkingu er ekki síður mikilvægt en að afla hennar. Á námskeiðinu er farið yfir lykilatriði í próftækni bæði varðandi undirbúning fyrir próf og atriði sem gott er að hafa í huga í prófum.

