Hvernig kemur þú þekkingunni sem best frá þér í prófum?
Stúdentaþjónusta HR heldur stutt og hagnýt próftækninámskeið. Farið er yfir lykilatriði í próftækni bæði varðandi undirbúning fyrir próf og atriði sem gott er að hafa í huga í prófum.
Námskeiðið er 30-45 mínútur og nemendur fá gögn í hendur sem nýtast þeim til að undirbúa prófatímabilið.
Það er jafn mikilvægt að þjálfa sig í að koma þekkingu frá sér (munnlega eða skriflega) eins og að öðlast þekkinguna.

