Aðstoðarkerfi fyrir nemendur með sértæka námsörðugleika/hamlanir
Sérúrræðanefnd Háskólans í Reykjavík.
Nefndina skipa fulltrúi Kennslusviðs, fulltrúi akademískra deilda, læknir og fulltrúi frá Stúdentaþjónustu sem situr í nefndinni sem fulltrúi nemenda.
Stefna HR er að styðja við nemendur þannig að þeir nái að hámarka hæfni sína og auka styrk sinn. Þetta er meðal annars gert með margskonar námskeiðum og ráðgjöf. Aðeins þeim sem glíma við alvarlegar hamlanir, t.d. eiga í erfiðleikum með að koma frá sér skrifuðum texta vegna lesblindu, eru veitt sérstök úrræði í lokaprófum.
Sérúrræði sem veitt eru í Háskólanum í Reykjavík ná til skriflegra lokaprófa að undanskildum heimtökuprófum og felast einkum í lengingu á próftíma.
Nemendur geta á grundvelli hamlana þeirra er þeir kljást við sótt um lengingu á próftíma í lokaprófum. Uppfylli umsóknin skilyrði sérúrræðanefndar HR fær nemandinn 15 mínútur aukalega fyrir hverja klukkustund í skriflegu lokaprófi. Nemendur geta ekki sótt um lengri tíma í miðannarprófum eða skyndiprófum og nemendur geta ekki tekið próf sín í einrúmi. Stúdentaþjónusta HR veitir öllum nemendum ráðgjöf og aðstoð varðandi námsframvindu. Stúdentaþjónstan heldur námskeið fyrir nemendur sem njóta sérúrræða á hverri önn, nánari upplýsingar eru á vefsvæði Stúdentaþjónstu HR.
Hlutverk nefndarinnar eru að fara yfir gögn frá nemendum varðandi óskir um sérúrræði í lokaprófum á grundvelli tiltekinna og staðfestra hamlana. Nefndin getur samþykkt eða hafnað óskum um sérúrræði í prófum á grundvelli þeirra vottorða eða gagna sem nemandi hefur lagt fram er varða hömlun hans í námi.
Nemendur þurfa að skila gögnum til nefndarinnar fyrir auglýstan tíma og er þar átt við vottorð og greiningar frá viðurkenndu fagfólki sem starfa á því sviði sem hömlun nemandans er samkvæmt greiningu. Í vottorðinu og/eða greiningunni þarf að koma fram hver hömlunin er, greining á henni og hvaða úrræði geta nýst nemandanum í lokaprófum. Ef beiðin er samþykkt undirritar nemandi samning um veitingu úrræðisins og getur gildistími hans verið frá einni önn til eins skólaárs eða námstímans í HR eftir eðli hömlunarinnar.
Nemendur sem óska eftir sérúrræðum vegna námshamlana þurfa að skila framangreindum gögnum til Heimis Haraldssonar náms- og starfsráðgjafa hjá Stúdentaþjónustu HR innan fjögurra vikna frá fyrsta kennsludegi á viðkomandi önn. Ef nemendur eru einvörðungu skráðir á sumarönn þurfa gögnin að berast til Stúdentaþjónustu áður en sumarönnin hefst.
