Sækja um sérúrræði

Til að sækja um sérúrræði þurfa nemendur að skila gögnum til Lóu Hrannar Harðardóttur, náms- og starfsráðgjafa fyrir 15. feb. og er þar átt við vottorð og greiningar frá viðurkenndu fagfólki sem starfa á því sviði sem hömlun nemandans er samkvæmt greiningu. Í vottorðinu og/eða greiningunni þarf að koma fram hver hömlunin er, greining á henni og hvaða úrræði geta nýst nemandanum í lokaprófum. Ef beiðnin er samþykkt er nemandinn skráður með sérúrræði og getur gildistíminn verið frá einni önn til eins skólaárs eða alls námstímans við HR, eftir eðli beiðninnar.

Öll frekari þjónusta er metin á einstaklingsgrundvelli og veita náms- og starfsráðgjafar HR allar frekari upplýsingar.


 

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica