Sérúrræðanefnd Háskólans í Reykjavík

Sérúrræðanefnd Háskólans í Reykjavík, sem stofnuð var árið 2008, tekur fyrir erindi nemenda sem sækja um lengri tíma í lokaprófum og/eða aðra þjónustu á námstímanum á grunni sértækra námsörðugleika, fatlana, hamlana eða veikinda. Nefndina skipa fulltrúi kennslusviðs, fulltrúi akademískra deilda, læknir og fulltrúi frá Stúdentaþjónustu sem situr í nefndinni sem fulltrúi nemenda.

Hlutverk nefndarinnar er að fara yfir gögn frá nemendum varðandi óskir um sérúrræði í lokaprófum á grundvelli tiltekinna og staðfestra hamlana. Nefndin getur samþykkt eða hafnað óskum um sérúrræði í prófum á grundvelli þeirra vottorða eða gagna sem nemandi hefur lagt fram er varða hömlun hans í námi.

Vinnulagsreglur sérúrræðanefndar HR:

  • Greiningar þurfa að vera á einstaklingsgrundvelli og ekki er tekið við hópgreiningum.
  • Greiningar þurfa að vera frá viðurkenndum fagaðila á sama sviði og sú hömlun sem nemandinn glímir við.
  • Próf í einrúmi er ekki í boði.
  • Þeir sem glíma við hamlanir sem líta má á sem tímabundnar og hægt er að vinna með, lækna eða gera viðráðanlegri, sækja um sérúrræði fyrir hverja önn eða einu sinni á ári, allt eftir því hver hömlunin er. Ef hömlun nemenda er varanleg s.s. sjónskerðing, dyslexia o.s.frv. þá sækir nemandinn um sérúrræði í upphafi náms og er skráður með sérúrræði út námstímann við HR.

Sérúrræðanefnd metur greiningar sem eru frá viðurkenndum fagaðilum sem vinna með hamlanir svo sem:

  • Sjónskerðingu, blindu / lögblindu
  • Heyrnarskerðingu, heyrnarleysi
  • Sértæka námsörðugleika s.s. dyslexíu, dyscalculi
  • Taugasálfræðileg vandamál s.s. , ADHD, tourette, asperger
  • Hreyfihömlun s.s. fatlanir, tímabundna hreyfihömlun vegna slyss
  • Langvarandi veikindi s.s. krabbamein, MS, MND, geðfatlanir

Nemendur sem óska eftir sérúrræðum þurfa að skila framangreindum gögnum til
Lóu Hrannar Harðardóttur, náms- og starfsráðgjafa hjá Stúdentaþjónustu HR. Umsóknarfrestur á vorönn 2012 er til 15. febrúar. Ef nemendur eru einvörðungu skráðir á sumarönn þurfa gögnin að berast til Stúdentaþjónustu áður en sumarönnin hefst. Ef aðstæður nemanda breytast eftir að skilafresti á umsóknum um sérúrræði í lokaprófum líkur, t.d. vegna slyss eða sjúkdóms, er unnið með úrræði fyrir viðkomandi á einstaklingsgrunni.

Öll frekari þjónusta er metin á einstaklingsgrundvelli og veita náms- og starfsráðgjafar HR allar frekari upplýsingar.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica