Forsetalisti HR

Styrkir fyrir afburðanemendur sem þegar eru í námi í HR

Þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga kost á að komast á forsetalista og fá skólagjöld næstu annar skv. námsskipulagi niðurfelld.

Til þess að vera gjaldgengir á forsetalista þurfa nemendur í dagskóla að ljúka að minnsta kosti 30 ECTS einingum á önn. Eingöngu námskeið sem nemendur ljúka á hefðbundnu próftímabili, eða fyrir þann tíma, eru gjaldgeng á forsetalista. Í útreikningi á meðaleinkunn gilda eingöngu próf sem tekin eru í fyrsta sinn í tilteknu námskeiði, m.ö.o. endurtektarpróf gilda ekki en sjúkrapróf gilda.

Upplýsingar um styrkinn veita verkefnastjórar deilda.

Nemendur sækja ekki um styrkinn sérstaklega heldur velur hver deild fyrir sig útfrá námsferli.


 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica