Nýnemastyrkir í meistaranámi
Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum sem hefja meistaranám styrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Meistaranámsstyrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er veittur nemendum sem hefja meistaranám á haustönn og vorönn.
- Til að geta sótt um styrkinn þarf fyrst að sækja um skólavist í HR.
- Val á þeim sem hljóta styrkinn mun byggjast á einkunn og innihaldi háskólaprófs miðað við æskilegan undirbúning fyrir það nám sem sótt er um. Auk þess verður tekið mið af starfsreynslu, verkefnum sem styrkumsækjandi hefur komið að og persónulegri yfirlýsingu í umsókn.
- Styrkurinn á við um allt nám á meistarastigi í HR sem er að lágmarki 90 ECTS einingar nema MBA og MPH Ex.
- Umsækjendur um styrkinn fá svar um miðjan júní fyrir haustönn og um miðjan desember fyrir vorönn.
- Í valnefnd styrksins eru forstöðumaður kennslusviðs, forstöðumaður stúdentaþjónustu og forstöðumaður rannsóknarþjónustu.
Markmið með styrkveitingunni er að hvetja framúrskarandi námsmenn til metnaðarfulls náms og til að auðvelda þeim að helga sig náminu af krafti.
Upplýsingar um styrkinn veitir Ása Björk Stefánsdóttir (asabjork@ru.is)

