Nýnemastyrkir

Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum nýnemastyrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Styrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er veittur nemendum sem hefja grunnnám á haustönn og vorönn:
- Allir sem sækja um skólavist og eru með góða einkunn á stúdentsprófi geta sótt um styrkinn.
- Til að geta sótt um styrkinn þarf fyrst að sækja um skólavist í HR.
- Aðeins þeir sem eru að fara í 3ja ára BSc/BA nám geta sótt um styrkinn.
Markmið með styrkveitingunni er að hvetja framúrskarandi námsmenn til metnaðarfulls náms og til að auðvelda þeim að helga sig náminu af krafti. Nýnemastyrkurinn er veittur á haustönn og vorönn.

