Námssjóður Sameinaðra verktaka við Háskólann í Reykjavík úthlutar styrkjum til nemenda við tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild.
Styrkurinn er ætlaður nemendum sem sýnt hafa afbragðs námsárangur og einnig þeim sem hyggja á framhaldsnám. Hver styrkur er nú að upphæð kr. 150 þúsund. Að öllu jöfnu er úthlutað úr sjóðnum í janúar og júní.
Í stjórn sjóðsins sitja Sturla Böðvarsson, Anna Bragadóttir og Ísleifur Árni Jakobsson.
Þeir sem geta sótt um eru:
- Nemendur sem hafa lokið námi og hafa fengið námsvist við menntastofnun sem veitir hærri prófgráðu í grein viðkomandi
- Nemendur í tæknifræði, verkfræði eða tölvunarfræði sem eiga eitt misseri eftir.
- Nemendur sem lokið hafa sams konar hluta hliðstæðs náms sem kann að verða kennt við skólann.
Skila skal umsóknum á sérstökum umsóknareyðublöðum sem hægt er að fá á skrifstofu skólans ásamt staðfestu ljósriti af námsferilsblaði frá skólanum.

