Hvar á erindið heima?
Skipulag náms, námsframvinda eða val á námi
Þú snýrð þér til viðkomandi deildar.
- Mat á námi milli deilda eða úr öðrum skólum
- Skipulag og uppbyggingu námsins/námskeiða
- Inntöku s.s. hvort viðkomandi hafi nægilegan undirbúning til að komast inn í námið
- Kennslufyrirkomulag í námskeiðum eða deildinni
Skráning eða úrsögn úr námskeiði/prófi
Þú snýrð þér til kennslusviðs.
Ef erindið varðar skráningu eða úrsögn úr námskeiðum/prófum - þá er rétt að vísa því til kennslusviðs.
Námstækni, stuðningur í námi, áhugasvið eða persónulegt mat
Þú snýrð þér til stúdentaþjónustu.
- Námstækni, vinnubrögð og tímaskipulag
- Námshringi og námstækninámskeið
- Áhugasvið og ráðgjöf um hvaða nám hentar viðkomandi best
- Styrki vegna námsins
- Upplýsingar um nám í öðrum skólum
- Upplýsingar um nám í HR almennt, t.d. fyrir nemendur sem eru ekki í skólanum eða ætla hugsanlega að skipta um deild innan skólans
- Störf að námi loknu, starfsþróun
- Próftöku og próftækni
- Sértæka námserfiðleika eða hamlanir s.s. lesblindu
- Perónuleg mál sem varða t.d. samhæfingu námsframvindu og einkalífs

