Tölvu- og tækniþjónusta
Tölvu- og tækniþjónusta HR ber ábyrgð á rekstri tölvukerfis HR og tækni- og tölvuþjónustu við starfsmenn og nemendur. Á tæknisviði starfa tveir kerfisstjórar, tæknistjóri, þjónustustjóri og tveir tæknimenn.
Netfang tölvu- og tækniþjónustu er hjalp@ru.is.
Reglur fyrir notendur tölvukerfis HR
Um leið og nemendur innritast í HR eru þeir um leið að samþykkja að hlýta reglum skólans er varðar tölvukerfi hans. Tæknisvið HR hefur umsjón og ber ábyrgð á öllum tækja- og tölvubúnaði skólans. Til viðbótar við sérreglur HR er vísað til notkunarskilmála Isnets og Rhnets, http://www.rhnet.is/. Notendur kerfisins skulu kynna sér þessar reglur þar sem þeir eru ábyrgir samkvæmt þeim.
- Allir nemendur hafa aðgang að tölvuverum, svo framarlega sem kennsla er ekki í gangi.
- Hver nemandi ber fulla ábyrgð á sinu notandanafni og notkun þess. Ekki er heimilt að láta þriðja aðila í té afnot að sínum aðgangi.
- HR áskilur sér rétt til að fara yfir, skoða og eyða gögnum og hugbúnaði á gagnasvæðum nemenda til að tryggja að reglum um notkun búnaðarins sé fylgt.
- Bannað að senda, sækja eða geyma efni sem er bundið höfundarétti, og/eða annað ólöglegt efni.
- Bannað er að nota (internet) tengingu skólans til miðlunar á ólöglegum skrám (peer-to-peer), td. tónlist, kvikmyndir ofl.
- Bannað er að setja inn hugbúnað og breyta uppsetningum á tölvum í eigu skólans nema með samþykki tölvu- og tæknisviðs.
- Meðferð hvers konar matvæla og drykkja er stranglega bönnuð í tölvuverum.
- Ef nemandi er ekki skráður í nám eða hættir námi á námsmisserinu þá missir hann notandanafn sitt mánuði eftir fyrsta skóladag.
Brot á þessum reglum geta leitt til lokunar á aðgangi að tölvukerfi HR, sé um alvarlegt eða endurtekið brot að ræða, getur það endað með brottvísun úr Háskólanum í Reykjavík. Nemendum er bent á að kynna sér reglur sem skólinn hefur sett varðandi umgengnisreglur í tölvuverum. Allar nánari upplýsingar er að finna á vef skólans.
