Alan Turing fyrirlestraröð

ATY_logo5

Alan Turing (23. júní 1912 – 7. júní 1954) var enskur stærðfræðingur og rökfræðingur. Hann er af mörgum talinn faðir tölvunarfræðinnar. Hann er hvað þekktastur fyrir að lýsa einfaldri vél, svokallaðri Turing-vél, sem getur reiknað allt sem tölvur geta reiknað. Hann lýsti einnig almennri Turing-vél, sem hefur minni og getur framkvæmt skipanir geymdar í minninu. Þetta var árið 1936, um áratug áður en fyrstu tölvurnar með minni komu fram, og hafði Turing því gríðarleg áhrif á þróun tölvunnar.

Í seinni heimsstyrjöldinni var Turing dulmálsgreinir á vegum bresku ríkisstjórnarinnar. Hann átti stóran þátt í að bretum tókst að ráða dulmál Þjóðverja, sem var búið til með dulmálsvélinni Enigma. Turing hannaði svonefndar Bombe greiningarvélar sem fundu mögulegar lausnir á dulmálinu á mun hraðvirkari hátt en fólk gat gert.

Árið 1952 var Turing ákærður fyrir samkynhneigð sem þá var glæpur í Bretlandi. Hann valdi hormónameðferð frekar en fangelsisvist, en varð þunglyndur og framdi skömmu síðar sjálfsmorð með því að borða epli sem hann hafði lagt í bleyti í blásýru. Árið 2009 gaf breski forsætisráðherrann Gordon Brown út formlega afsökunarbeiðni af hálfu bresku ríkisstjórnarinnar fyrir þá skelfilegu meðferð sem hann hlaut. Frekari upplýsingar um Alan Turing má finna á síðu Wikipedia og í Stanford Encyclopedia of Philosophy.

Í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu Turings og munu ICE-TCS og tölvunarfræðideild HR, í samstarfi við Íslenska stærðfræðafélagið, gervigreindarsetur HR (CADIA) og Vitvélastofnun Íslands (IIIM), bjóða upp á ýmsa fyrirlestra og atburði í tengslum við þetta afmælisár. Fyrirlestra og atburði má sjá nánar hér: http://icetcs.ru.is/turingyear2012RU.html.

Luca AcetoVefsíða varðandi Alan Turing Year á heimsvísu má sjá hér

Fyrsti fyrirlesturinn var fimmtudaginn 12. janúar og var Luca Aceto ræðumaður. Fyrirlesturinn fjallaði um Alan Turing's work on computability and the universal computer í boði ICE-TCS  og Icelandic Mathematical Society
(Joint with the Icelandic Mathematical Society.)

Hægt er að sjá fyrirlesturinn hans hér:  http://www.ru.is/~luca/Turing2.avi   

Ymir

Næsti fyrirlestur verður haldinn föstudaginn 17. febrúar og mun Ýmir Vigfússon vera með fyrirlestur um Alan Turing´s code-breaking work í samstarfi með ICE-TCS  og Icelandic Mathematical Society

Fyrirlesturinn verður haldinn í M101 frá klukkan 16:30-17:30.


Bjarni-V.-HalldorssonFimmudaginn 15 mars 2012 mun Bjarni V. Halldórsson fjalla um Alan Turing's work on mathematical biology í samstarfi með ICE-TCS  og Icelandic Mathematical Society.

Fyrirlesturinn verður haldinn í M101 frá 16:30-17:30.


Fjórði fyrirlesturinn verður 29 mars 2012. En þá mun Magnús M. Halldórsson flytja fyrirlesturinn The million dollar question: P vs. NP, and the legacy of Turing. (Í samstarfi við Icelandic Mathematical Society.)

Fimtmudaginn 12 apríl 2012 mun Yngvi Björnsson  halda fyrirlestur um Alan Turing's contributions to AI.  Eftir fyrirlesturinn mun koma fram gagnrýni á Turing Test sem Kristinn R. Thórisson mun ræða um. 





 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica