Forsetalisti TVD
Þeir nemendur í grunnnámi sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga þess kost að komast á forsetalista tækni- og verkfræðideildar og fá skólagjöld næstu annar niðurfelld. Forsetalisti er einnig birtur fyrir nemendur á lokaönn í grunnnámi og fá þeir skólagjöld næstu annar niðurfelld, kjósi þeir að hefja meistaranám við tækni- og verkfræðideild.
Til þess að vera gjaldgengir á forsetalista þurfa nemendur í dagskóla að ljúka einingum sem svara til fulls náms á viðkomandi önn og þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum viðkomandi annar samkvæmt samþykktri námsáætlun. Nemendur sem stunda fjarnám í iðnfræði og byggingafræði eru gjaldgengir á forsetalista á hverri önn. Þeir þurfa að ljúka öllum námskeiðum viðkomandi annar samkvæmt samþykktri námsáætlun. Samþykkt námsáætlun getur annars vegar verið birt námsáætlun og hins vegar eigin námsáætlun nemanda sem námsmatsnefnd hefur samþykkt.
Eingöngu námskeið sem nemendur ljúka á hefðbundnu próftímabili, eða fyrir þann tíma, eru gjaldgeng á forsetalista. Í útreikningi á meðaleinkunn gilda eingöngu próf sem tekin eru í fyrsta sinn í tilteknu námskeiði, m.ö.o. sjúkrapróf gilda en endurtektarpróf ekki.
Miðað er við að um 2% nemenda í tiltekinni grein komist á forsetalista hverju sinni.

