Heilsuþjálfun og kennsla MEd


FotboltiMeistaranámið er ætlað leiðtogum, þjálfurum, kennurum og öðru fagfólki sem vill dýpka þekkingu sína á sviði íþróttaþjálfunar, íþróttakennslu og heilsuræktar. Nemendur öðlast skilning á mikilvægi íþrótta í forvarnastarfi og þekkingu á hvernig  hámarka megi íþróttagetu og lífsgæði með líkamlegri þjálfun á öllum aldri og getustigum.  Námið er samsett úr námskeiðum sem byggjast bæði á fræðilegum og hagnýtum grunni.

MEd-námið er ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í íþróttakennslu og lífsstílsfræðum á sviði heilsuræktar. Lögð er áhersla á nýjustu viðurkenndu kennsluaðferðir og hagnýtingu íþróttafræðanna.  Gráðan getur tryggt kennsluréttindi á öllum skólastigum fyrir þá sem hafa viðeigandi grunnmenntun (t.d. BSc í íþróttafræði).

Skipulag námsins

1. ár haustönn 2012
Heilsuefling; aðferðir og skipulag (10 ECTS)
Sálræn þjálfun og liðsheild (10 ECTS)
Siðfræði (5 ECTS)
Sjálfstætt verkefni (5 ECTS)

1. ár vorönn 2013
Aðferðafræði rannsókna (10 ECTS)
(val) Hugmyndafræði og skipulag þjálfunar (10 ECTS)
(val) Hagnýt tölfræði (10 ECTS)
(val) Stefnumótun og stjórnun (10 ECTS)
(val) Annað val (10 ECTS)
 
2. ár haustönn 2013
Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva (10 ECTS)
Íþróttamælingar og rannsóknir (5 ECTS)
(val) Sjálfstætt verkefni (10 ECTS)
(val) Ráðstefnur og verkefni (5 ECTS)
(val) Annað val (5-10 ECTS)
 
2. ár vorönn 2014
Lausnamiðuð leikni og jákvæð samskipti (10 ECTS)
Námsefnisgerð (10 ECTS)
(val) Hugmyndafræði og skipulag þjálfunar (10 ECTS)
(val) Stefnumótun og stjórnun (10 ECTS)
(val) Jákvæð sálfræði (12 ECTS)
(val) Annað val (10 ECTS)

Námskeiðslýsingar má finna í Kennsluskrá.

Sækja um: http://www.ru.is/namid/ertu-ad-spa-i-hr/saekja-um-i-hr/

Nánari upplýsingar veitir:
Erna Karen Óskarsdóttir, verkefnastjóri, ernakaren@ru.is , s.599 6471 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica