Námið er sérstaklega ætlað einstaklingum sem stefna á að efla sig sem starfandi íþróttakennarar í grunn- og/eða framhaldsskólum
Uppsetning námsins:
Tveggja ára framhaldsnám, 120 ECTS einingar. Námið skiptist í 60 ECTS eininga nám í kennslufræði og 60 ECTS í námskeiðum tengdum íþróttafræði og heilsuþjálfun.
Tilgangur og markmið:
Markmið námsins er að undirbúa nemendur fyrir störf við íþróttakennslu á öllum skólastigum og heilsuþjálfun almennings á öllum aldri og getustigum.
Forkröfur:
Ætlast er til að nemendur hafi lokið grunnnámi í íþróttafræði, sjúkraþjálfun, heilsuþjálfun, líffræði, menntavísindum eða öðrum skyldum greinum.
Skipulag og tilhögun námsins:
Meistaranámið í heilsuþjálfun og kennslu er skipulagt sem tveggja ára nám (fjórar annir) til 120 ECTS til MEd gráðu. Náminu er skipt niður í 100 ECTS einingar í skyldunámskeiðum og 20 ECTS í valnámskeiðum.

