Meistaranámið er ætlað leiðtogum, þjálfurum, kennurum og öðru fagfólki sem vill dýpka þekkingu sína á sviði íþróttaþjálfunar, íþróttakennslu og heilsuræktar. Nemendur öðlast skilning á mikilvægi íþrótta í forvarnarstarfi og þekkingu á hvernig hámarka megi íþróttagetu og lífsgæði með líkamlegri þjálfun á öllum aldri og getustigum. Námið er samsett úr námskeiðum sem byggjast bæði á fræðilegum og hagnýtum grunni.
MSc-námið í íþróttavísindum og þjálfun er ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í þjálfun íþróttafólks eða rannsóknum á sviði íþróttafræða. Lögð er áhersla á nýjustu viðurkenndu rannsóknar- og þjálfunaraðferðir og hagnýtingu þeirra.
Skipulag námsins
1. ár haustönn 2012
Þjálfunarlífeðlisfræði hreyfinga (10 ECTS)
Tækni og tæki við íþróttamælingar (5 ECTS)
Endurheimt og næring í íþróttum (10 ECTS)
Siðfræði (5 ECTS)
1. ár vorönn 2013
Aðferðafræði rannsókna (10 ECTS)
Hugmyndafræði og skipulag þjálfunar (10 ECTS)
Hagnýt tölfræði (10 ECTS)
2. ár haustönn 2013
Þjálfunarlífeðlisfræði orkukerfa og vöðva (10 ECTS)
Sálræn þjálfun og liðsheild (10 ECTS)
Íþróttamælingar og rannsóknir (5 ECTS)
Sjálfstætt verkefni (5 ECTS)
2. ár vorönn 2014
Meistaraverkefni (30 ECTS)
Námskeiðslýsingar má finna í Kennsluskrá.
Sækja um: http://www.ru.is/namid/ertu-ad-spa-i-hr/saekja-um-i-hr/
Nánari upplýsingar veitir:
Erna Karen Óskarsdóttir , verkefnastjóri, ernakaren@ru.is, s.599 6471

