Uppsetning námsins:
Tveggja ára framhaldsnám, 120 ECTS einingar. Námið skiptist í 30 ECTS aðferðafræði og hagnýta tölfræði, 40 ECTS skyldubundið nám þar sem lögð er áhersla á lífeðlis-, þjálf-, íþróttasál- og næringarfræði og 20 ECTS í val. Lokaverkefni 30 ECTS.
Tilgangur og markmið:Markmið námsins er að undirbúa nemendur fyrir störf við rannsóknir og þjálfun á sviði íþrótta. Sérstök áhersla verður á afreksþjálfun í íþróttum og rannsóknir þeim tengdum.
Forkröfur:
Ætlast er til að nemendur hafi lokið grunnnámi í íþróttafræði, sjúkraþjálfun, heilsuþjálfun, líffræði eða öðrum skyldum greinum.
Skipulag og tilhögun námsins:
Meistaranámið í íþróttavísindum og þjálfun er skipulagt sem tveggja ára nám (fjórar annir), 120 ECTS til MSc gráðu. Náminu er skipt niður í 90 ECTS einingar í námskeiðum og 30 ECTS lokaverkefni.

