Námsbrautin Mannvirkjahönnun býður upp á sérhæft nám í burðarþolshönnun, efnishönnun byggingarefna og eðlisfræðilegri hönnun bygginga.
Helstu markmið námsbrautarinnar eru:
- Að nemendur öðlist aukinn fræðilegan bakgrunn til mannvirkjahönnunar.
- Að nemendur nái færni með því að leysa raunhæf verkefni.
- Að nemendur læri að beita gagnrýnni hugsun við lausn viðfangsefna.
Dæmi um rannsóknarverkefni:
- Notkun basaltstanga til styrktar steypu
- Jarðskjálftagreining á byggingum
- Skrið og niðurbeygja í steypu
- Styrkingar á steypuþversniðum með FRP
- Tengingar á steyptum einingum
- Rannsókn á loftun þaka
- Þvingunarbending í steyptum þversniðum
- Beiting og þróun markmiðshönnunar
- Rannsókn á notkun trefja í steyptum einingum
- Athugun á sveifluálagi fyrir samsett gólf
- Jarðskjálftaþol lágreistra skerveggja í ljósi EC8

Umsækjendur
Umsækjendur skulu hafa lokið BSc prófi í tækni- eða verkfræði af byggingarsviði með góðum árangri. Þeir sem hafa annan bakgrunn úr tækni- eða verkfræði þurfa að sækja viðbótarnámskeið.
Kennslufyrirkomulag
Kennslan er byggð á fyrirlestrum, verkefnavinnu og rannsóknarverkefnum. Námið er 120 ECTS, þar af getur meistaraverkefni verið 30 eða 60 ECTS.
Sjá nánar Reglur um meistaranám
Rannsóknarsetur mannvirkjahönnunar-SEL
Umsjónarkennari námsbrautar í mannvirkjahönnun
Eyþór Rafn Þórhallsson, umsjónarmaður námsbrautar, eythor@ru.is

