MSc byggingarverkfræði með sérhæfingu í umferð og skipulagi
MSc í skipulagsfræði og samgöngum
Námsbrautin Umferð og skipulag (Transport and Urban Planning) veitir sérhæfingu á sviði skipulagsgerðar, umferðar- og samgöngumála og umhverfismála.
Skipulag landnotkunar og samgangna sem og hönnun og útfærsla byggðar og umferðarmannvirkja gegna mikilvægu hlutverki fyrir daglegt líf okkar. Tryggja þarf að landnýting, samgöngur og samgöngumannvirki séu hagkvæm, sinni þörfum allra þjóðfélagshópa og að tillit sé tekið til áhrifa á heilsu, umhverfi og samfélag. Samkeppnishæfni borga og bæja og gæði hins byggða umhverfis byggir á vönduðum skipulagsákvörðunum þar sem gætt er að sögu, fagurfræði, umhverfi og ýmsum menningarlegum og félagslegum þáttum.
Í námsbrautinni er lögð áhersla á að nemendur öðlist víðtæka þekkingu og skilning á þeim sjónarmiðum og aðferðum sem lögð eru til grundvallar ákvörðunum um samgöngur og byggðarskipulag og hvernig ná má hámarksárangri við mótun samgangna og byggðar með því að leggja saman nálgun, þekkingu og aðferðir sem beitt er í umferðarverkfræði og skipulagsfræði.
Rannsóknarhópur um umferð og skipulag
Helstu markmið námsbrautarinnar eru:
-
Að veita góða menntun á fagsviðum námsbrautarinnar þar sem áhersla er lögð á djúpa, haldgóða þekkingu, sem byggir jöfnum höndum á miðlun nýjustu þekkingar og rótgróinna fræða og aðferða.
-
Áhersla á þverfaglega nálgun og eflingu skilnings á ólíkum sjónarmiðum og þörfum við skipulag byggðar og skipulag og hönnun samgöngumannvirkja. Það varðar bæði tengingar milli áherslna innan námsbrautarinnar - umferðar, skipulags og umhverfis -, en einnig skýr tengsl við aðrar faggreinar sem varða ákvarðanir um samgöngur og skipulag, s.s. framkvæmdastjórnun, lýðheilsufræði, lögfræði og hagfræði.
-
Áhersla á samtvinnun umhverfismála í viðfangsefni námsbrautarinnar, m.t.t. sjálfbærrar þróunar og loftslagsbreytinga.
Umsækjendur og prófgráða
Þeir sem hafa annan bakgrunn, t.d. BA próf í arkitektúr eða BSc próf í byggingafræði, landafræði, skipulagsfræði, umhverfisskipulagi eða umhverfisfræði, útskrifast með MSc próf í skipulagsfræði og samgöngum (MSc in Urban Planning and Transport). Prófgráðan uppfyllir skilyrði til lögverndaða starfsheitisins skipulagsfræðingur.
Umsjón námsbrautar og nánari upplýsingar
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt og námsbrautarstjóri
Dr. Haraldur Sigþórsson, lektor

