Meistaranám í heilbrigðisverkfræði er ætlað þeim sem hafa lokið BSc í verkfræði og lýkur náminu með MSc í verkfræði.
Hlutverk námsins er að undirbúa verðandi heilbrigðisverkfræðinga til að beita aðferðum verkfræðinnar til að greina, hafa áhrif á eða stýra lífrænum ferlum, og þá sérstaklega þeim er viðkemur mannslíkamanum, og bæta þannig líf mannsins. Þannig er þekking á mannslíkamanum samþætt verkfræðilegum aðferðum í þverfaglegu námi.
Námið er skipulagt sem eðlilegt framhald af BS-námi í heilbrigðisverkfræði við Tækni- og verkfræðideild, en það hentar einnig nemendum úr öðrum greinum verkfræðinnar sem taka þá tiltekin undirstöðunámskeið í BS-hluta námsinsins í heilbrigðisverkfræði.
Náminu er skipt í kjarna, valsvið og lokaverkefni. Allir nemendur taka bóklegt nám sem jafngildir a.m.k. einni önn og framhaldið fer síðan eftir áhuga- og valsviði hvers og eins. Lokaverkefnin eru ýmist unnin innan HR eða hjá samstarfsstofnunum skólans. Nemendur geta tekið hluta af námi sínu erlendis hjá samstarfsskólum Tækni- og verkfræðideildar. Valnámskeið eru á fjölbreyttu formi (s.s. lesnámskeið, fjarnám og minni verkefni) og geta verið við Háskólann í Reykjavík sem og við innlenda og erlenda háskóla. Í heildina er námið 120 ECTS einingar og er skipulagt sem tveggja ára nám, alls fjórar annir.
kemur fram í töflunni hér fyrir neðan. Í kjarna sem allir nemendur taka eru námskeiðin Klínísk verkfræði, Greiningartækni, Meðferðartækni, Málstofa og Aðferðarfræði (I og II). Til viðbótar þessum sameiginlega kjarna tekur nemandinn eina eða tvær annir af valnámskeiðum sem eru valin eftir áherslusviði hans og þeim rannsóknum sem hann stundar í sínu lokaverkefni. Lokaverkefni eru 30 eða 60 ECTS einingar.
Lýsing námskeiðanna er í kennsluskrá.
Dæmi um rannsóknir í heilbrigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík- Útbreiðsla samdráttar í legvöðva: hagnýting við greiningu yfirvofandi fyrirburafæðingar (nánar)
-
Reiknirit í lífupplýsingafræði (nánar)
-
Taugaverkfræði, notkun ígræðlinga og þróun aðferða til að endurhæfa aftaugaða fætur, líkanagerð til hönnunar á rafskautafylkjum
-
Taugalífeðlisfræði svefns: svefnþroski og hreyfiþroski, tölfræðileg lýsing á svefni, starfræn segulómun hýpokretín kerfisins, og þróun nýstárlegra dýralíkana í svefnrannsóknum (nánar)
-
Stofnfrumulíffræði, vefjaverkfræði og frumumeðferð, þróun mmóta (e. scaffolds) til ræktunar og sérhæfingar á stofnfrumum
-
Þrívíddarlíkön og skipulagning á skurðaðgerðum
-
Lífmerki, m.a. heilarafrit.
-
Lífupplýsingafræði, þróun reikniaðferða til að skoða erfðamörk, genatjáningu og próteintjáningu (nánar)
-
Líftölfræði, greining á fylgni sjúkdóma og skýribreyta (nánar)
Erlendir samstarfsskólar eru m.a.
- University of Strathclyde, Glasgow, Bretlandi
- Vienna University of Technology , Austurríki
- University of Napoli, Ítalíu
- University of Padua, Ítalíu
- University of Bologna, Ítalíu
- Université Technologique de Compiègne, Frakklandi
- MIT, Cambridge, Massachusetts, Bandaríkjunum
- Brown University, Providence, Rhode Island, Bandaríkjunum
- Albert Ludwigs Universitat Freiburg, Þýskalandi
Samstarfsstofnanir innanlands eru m.a.
- Landspítali - Háskólasjúkrahús
- Blóðbankinn
- Íslensk erfðagreining
- Hjartavernd
Nánari upplýsingar
Kristín Kristinsdóttir verkefnastjóri,kristinkri@ru.is
Haraldur Auðunsson sviðsstjóri, haraldura@ru.is

