Í meistaranámi í véla- og rafmagnsverkfræði við Háskólann í Reykjavík er boðið upp á fjölbreytta möguleika í verkefnavali, ásamt sterkri verkfræðilegri nálgun. Til grundvallar náminu liggur svokölluð véleindafræði (e. mechatronics) þar sem véla- og rafmagnsverkfræði skarast. Lögð er áhersla á að nemendur geti beitt ýmsum þáttum verkfræðinnar, t.d. vélhlutahönnun, stýritækni, merkjafræði, kerfisgreiningu og hermun til þess að fást við yfirgripsmikil vandamál. Jafnframt hafa nemendur kost á að vinna að vísindarannsóknum á sviðinu eða tengdum sviðum.
Lögð er áhersla á að nemendur öðlist traustan fræðilegan skilning til að geta spurt markverðra rannsóknarspurninga; greiningarhæfileika og tæknilega færni til að svara þeim; og færni við að koma niðurstöðum á framfæri á viðeigandi hátt.
Uppbygging náms
Nám til meistaragráðu er 120 ECTS einingar og er miðað við að því sé lokið á fjórum önnum. Meistaraverkefni eru almennt 30 ECTS eininga verkefni (ein önn) nátengd atvinnulífinu. Einnig er möguleiki á að taka 60 ECTS rannsóknarverkefni (2 annir) ef bakgrunnur nemenda fullnægir kröfum sem gerðar eru til BSc-gráðu í véla- eða rafmagnsverkfræði. Allir nemendur taka skyldunámskeiðið Sameiginlegt hönnunarverkefni og þrjú námskeið sem þeim fylgja.
Tvær námslínur eru mögulegar: Vélaverkfræði og Rafmagnsverkfræði. Fimm kjarnanámskeið eru á hvorri línu. Taka þarf þrjú námskeið úr annarri hvorri línunni (m.v. 30 eininga meistaraverkefni), allt eftir því hvort ætlunin er að útskrifast sem véla- eða rafmagnsverkfræðingur. Bakgrunnur nemenda ræður mestu um á hvora línuna þeir innritast.
Önnur námskeið eru valin í samráði við leiðbeinendur þannig að þau falli að áhugasviði nemenda og meistaraverkefni þeirra. Valnámskeið geta verið tekin af mismunandi sviðum, bæði innan Tækni- og verkfræðideildar, sem utan. Einnig eiga nemendur þann kost að taka hluta úr námi sínu erlendis.
Rannsóknir
Á véla- og rafmagnssviði fara fram afar fjölbreyttar rannsóknir sem nemendur geta unnið meistaraverkefni sín í tengslum við. Rannsóknir eru unnar á sviði örtækni, straumfræði, bestunar, véleindafræði, endurnýjanlegrar orku og hagnýtrar stærðfræði svo nokkuð sé nefnt.
Umsóknarferli og inntökuskilyrði
Skilyrði fyrir inngöngu er að nemendur hafi lokið BSc námi í verkfræði, eða tengdu fagi með góðum árangri. Leitað er að nemendum sem hafa mikinn áhuga og eru tilbúnir að leggja hart að sér í fullu námi. Þeir sem hefja meistaranám í véla- og rafmagnsverkfræði fá strax umsjónarmann, sem verður að öllu jöfnu aðal- eða meðleiðbeinandi lokaverkefnis þeirra. Nemendur velja námskeið í sambandi við umsjónarmann með hliðsjón af áhugasviði og lokaverkefni.
Frekari upplýsingar
Jóhanna Fríða Dalkvist verkefnastjóri meistaranáms, johannafd@ru.is
Guðrún Sævarsdóttir sviðsstjóri véla- og rafmagnssviðs, gudrunsa@ru.is

