Þeir sem lokið hafa BSc námi með góðum árangri eiga kost á styrkjum sem felast í niðurfellingu skólagjalda, að hluta eða öll leyti.
Sérstakur forsetastyrkur (Dean‘s selection fellowship) sem nemur niðurfellingu allra skólagjalda í tvö ár.
Forsetastyrkur (Dean's selection grant) sem felur í sér niðurfellingu hluta skólagjalda þannig að nemandi greiðir einungis skólagjöld grunnnáms meðan á meistaranámi stendur.
Athugið að umsókn um að hefja fullt meistaranám í tækni- og verkfræðideild er jafnframt umsókn um ofangreinda styrki.
Aðstoðarkennsla
Hefð er fyrir því hjá tækni- og verkfræðideild að meistaranemum standi til boða að taka þátt í kennslu sem launaðir aðstoðarmenn. Þeir sem hljóta forsetastyrk ganga fyrir um störf við aðstoðarkennslu.
Frekari upplýsingar
Kristín Kristinsdóttir, kristinkri@ru.is verkefnastjóri framhaldsnáms

