Aðstoðarkennarastyrkir

Tækni- og verkfræðideild býður aðstoðarkennarastyrki fyrir meistaranema. Styrkirnir eru ætlaðir meistaranemum í fullu námi sem ekki hafa fengið annan styrk tengdan meistaraverkefni.

Vinnuframlag nemenda með aðstoðarkennarastyrki miðast við kennslu tveggja dæmatímahópa í sama námskeiði (eða sambærilegt). Öll kennsla nemenda með aðstoðarkennarastyrki verður undir umsjón aðalkennara námskeiðsins og reynds dæmatímakennara.

Nemendur sem hljóta aðstoðarkennarastyrki fá helming skólagjalda niðurfelldan auk launa fyrir kennslu í eitt misseri.

Til að sækja um skal senda tölvupóst á verkefnastjóra meistaranáms kristinkri@ru.is með upplýsingum um fullt nafn, kennitölu og hvaða námskeið gætu helst hentað viðkomandi aðila að kenna.

 Frekari upplýsingar

Kristín Kristinsdóttir, kristinkri@ru.is verkefnastjóri meistaranáms


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica