Tækni- og verkfræðideild býður forsetastyrki fyrir meistaranema.
Um er að ræða tvær tegundir af styrkjum:
-
Sérstakur forsetastyrkur (Dean‘s selection fellowship) sem nemur niðurfellingu allra skólagjalda í tvö ár. Veittir verða styrkir til allt að 5 nýnema á hverri önn.
-
Forsetastyrkur meistaranáms (Dean‘s selection grant) sem felur í sér niðurfellingu skólagjalda fyrsta misserið í meistaranámi. Veittir verða styrkir til allt að 10 nýnema á hverri önn.
Allir þeir sem hljóta þessa styrki njóta forgangs til þátttöku í aðstoðarkennslu í grunnámi TVD á meðan að námi þeirra stendur.
Athugið að umsókn um að hefja fullt meistaranám í tækni- og verkfræðideild er jafnframt umsókn um ofangreinda styrki.
Nemendur fá bindandi svar um hvort þeir hljóti styrk eigi síðar en 15 virkum dögum eftir að umsóknarfresti lýkur. Nemendur verða svo að staðfesta hvort þeir vilji nýta styrkinn innan 15 virkra daga. Forsetastyrkir tækni- og verkfræðideildar eru eingöngu ætlaðir nemendum sem stunda fullt nám (a.m.k. 26 ECTS einingar á önn).
Eins og nafnið gefur til kynna eru styrkirnir veittir af forseta tækni- og verkfræðideildar, sem tekur ákvörðun um veitingu styrkjanna. Hann hefur sér til ráðuneytis forstöðumenn grunn- og framhaldsnáms í deildinni ásamt sviðsstjórum fagsviða.
Það sem eykur líkur á að nemandi hljóti forsetastyrki er m.a.
-
Afburða námsárangur í grunnnámi (háar einkunnir, vera á forsetalista, afburðagott lokaverkefni eða annar vitnisburður um árangur í grunnnámi).
-
Gæði umsóknar. (Meðmæli atvinnuveitanda og/eða samstarfmanna, ýtarleg greinargerð um hvernig námið sem sótt er um fellur að framtíðarsýn nemanda.)
-
Bakgrunnur nemanda hentar einstaklega vel til þess náms sem sótt er um. (Greinagerð um mikinn árangur í fyrri störfum sem auka líkur á góðum árangri í meistaranámi.)

