Viðurkenningar á Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík
Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík var haldin laugardaginn 4. febrúar til heiðurs ungum iðnaðarmönnum sem lokið hafa sveinsprófi á árinu 2011 með afburðaárangri. Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík hefur undanfarin ár veitt viðurkenningar til þeirra sem þykja hafa skarað fram úr á sveinsprófi.
Guðrún A. Sævarsdóttir, forseti tækni- og verkfræðideildar, afhenti viðurkenningarnar við þessa hátíðlegu athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur en þær hlutu:
Ágústa Ýr Sveinsdóttir (rafvirkjun)
Smári Hallmar Ragnarsson (vélvirkjun)
Finnur Einarsson (rennismíði)


