Fjölbreytt tækifæri og mikil starfsréttindi að námi loknu
Tækni- og verkfræðideild býður 3½ árs nám í tæknifræði til BSc-gráðu (210 ECTS eininga) í fjórum greinum:
Byggingartæknifræði
Iðnaðartæknifræði
Rafmagnstæknifræði
Vél- og orkutæknifræði
Megináhersla er lögð á að nemendur vinni hagnýt, raunhæf verkefni sem byggja á þekkingu kennara úr atvinnulífinu og eru oft unnin í samstarfi við fyrirtæki, m.a. 24 ECTS eininga lokaverkefni. Langflestir kennaranna hafa mikla starfsreynslu við hönnun, framleiðslu eða framkvæmdir. Nemendur sem stunda nám í tæknifræði eru gjarnan iðnmenntaðir eða hafa verkþekkingu á fagsviðinu og námið byggir ofan á þann grunn.
Þeir sem ljúka lokaprófi í tæknifræði hljóta staðfestingu iðnaðarráðuneytisins og full réttindi til að starfa sem tæknifræðingar og nota lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur (enska: certified engineer). Jafnframt eru ótalmargir möguleikar á framhaldsnámi og aðgengilegt að byggja MSc-nám í verkfræði ofan á BSc-próf í tæknifræði, hvort heldur hér á landi eða við erlenda háskóla.

Byggingartæknifræði
