Yfirlit
Í hátækniverkfræðinni er fengist við það svið verkfræðinnar sem stundum er kallað mekatróník (e. mechatronics). Þar er lögð áhersla á að samtvinna hönnun vélbúnaðar við nútíma skynjara og stýritækni. Því má segja að námið blandi saman mörgum þáttum hefðbundinnar vélaverkfræði, rafmagnsverkfræði og tölvunarfræði til þess að nemendur geti tekist á við flókin samþætt kerfi sem byggja á tölvustýringum. Sökum breiddarinnar er hátækniverkfræðin góð undirstaða fyrir framhaldsnám í langflestum verkfræðigreinum.
Inntökuskilyrði
- Stúdentspróf, frumgreinapróf eða sambærilegt próf
- Æskilegur undirbúningur:
Stærðfræði - 21 eining
Eðlisfræði - 6 einingar
Hafið samband
Nánari upplýsingar:
Ármann Gylfason (armann@ru.is), námsbrautarstjóri
Brynjólfur V. Ólafsson (brynjolfuro@ru.is), verkefnastjóri grunnnáms í verkfræði.

