Yfirlit
Rekstrarverkfræði er þverfagleg grein þar sem notaðar eru verkfræðilegar aðferðir og hugmyndafræði við rekstrarfræðilegar ákvarðanir og stjórnun í víðtækri merkingu. Í náminu er blandað saman námskeiðum í hefðbundinni verkfræði og rekstrarfræði, svo sem aðgerðagreiningu, tölfræði, reikniritum og stærðfræðilíkönum sem nýtast við að taka ákvarðanir sem snúa að rekstri og stjórnun á tæknilegum viðfangsefnum.
Markmið rekstrarverkfræðinámsins er að mennta stjórnendur, sérfræðinga og leiðtoga sem geta tekist á við nýsköpunarverkefni, flókin alþjóðleg viðskipti og uppbyggingu nýrra tækifæra í atvinnulífinu.
Hafið samband
Nánari upplýsingar:
Páll Jensson (pallj@ru.is), sviðsstjóri
Brynjólfur V. Ólafsson (brynjolfuro@ru.is), verkefnastjóri grunnnáms í verkfræði.

