Iðnfræði og byggingafræði BSc

Fjölbreytt diplomanám í fjarkennslu með möguleikum á framhaldsnámi.

Iðnfræði er hagnýtt 90 ECTS eininga nám á háskólastigi sem er eingöngu kennt í fjarnámi með tveimur staðarlotum á önn, ein helgi í senn. Hægt er að velja um tvær leiðir til að ljúka námi í bygginga-, raf- eða véliðnfræði.

  • Leið 1:  Nám samhliða vinnu í 3 ár. 
  • Leið 2:  Fullt nám í 1½ ár. 

Víða á landsbyggðinni geta nemendur fengið aðstöðu til hópvinnu í símenntunarstöðvum, fræðslusetrum og háskólasetrum, en á höfuðborgarsvæðinu býðst nemendum vinnuaðstaða í skólanum. 

Réttindi að iðnfræðinámi loknu:

Námið skiptist í þrjú svið: byggingariðnfræði, véliðnfræði og rafiðnfræði. Til að útskrifast sem iðnfræðingur, sem er lögverndað starfsheiti, þarf nemandi að hafa lokið sveinsprófi í iðngrein á viðkomandi sviði og veitir námið þá rétt til meistarabréfs.

Byggingariðnfræðingar fá réttindi til að starfa sem byggingarstjórar. Þeir geta einnig haldið áfram námi í byggingafræði sem er 210 ECTS eininga BSc nám og er iðnfræðin (90 ECTS einingar) metin að fullu inn í það nám.

Þeim sem ljúka byggingar-, vél- eða rafiðnfræði býðst að bæta við sig 30 ECTS eininga námi í rekstrariðnfræði.

Nánari upplýsingar veita: 
Vilborg Hrönn Jónudóttir, verkefnastjóri, vilborg@ru.is , s.599 6255
Jens Arnljótsson, lektor og verkefnastjóri iðnfræðináms jensarn@ru.is


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica