Byggingafræði BSc

Nám til BSc gráðu í byggingafræði er 120 ECTS eininga viðbótarnám að loknu 90 ECTS eininga námi í byggingariðnfræði, samtals 210 ECTS einingar.

Kennt er í fjarnámi með verkefnalotum í staðarnámi. Að loknu námi í byggingariðnfræði er hægt að velja um tvær leiðir til að ljúka námi í byggingafræði.

  •        Leið 1: Nám samhliða vinnu í 3 ½ ár.
  •        Leið 2: Fullt nám í 2 ár. 

Byggingafræðingar geta öðlast löggildingu til að árita aðaluppdrætti og þar með rekið teiknistofur, starfað sem skipulags- og byggingarfulltrúar hjá sveitarfélögum, starfað sem byggingarstjórar, sem skoðunarmenn mannvirkja og rekið skoðunarstofur.

Byggingafræðingar starfa á teiknistofum sem gæðastjórar, verkefnastjórar eða hönnuðir.  Þeir reka eigin teiknistofur og starfa sem framkvæmdastjórar arkitektastofa eða annarra fyrirtækja í byggingariðnaði.

Margir starfa hjá verktakafyrirtækjum sem verkefnastjórar eða byggingarstjórar. Að auki má nefna tryggingafélög, fasteignafélög, banka, fasteignasölur, fyrirtæki í innflutnings- og smásöluverslun og opinbera aðila s.s. Fasteignamat ríkisins, Fasteignir ríkisins og Íbúðalánasjóð. 

Inntökuskilyrði:
Umsækjendur skulu hafa sveinspróf og lokið 90 ECTS eininga námi í byggingariðnfræði.

Fyrirkomulag náms:

  Byggingariðnfræði 90 ECTS
  Hönnunarverkefni og námskeið 75 ECTS
  Starfsþjálfun 15 ECTS
  Sérhæfð ritgerð 10 ECTS
  Lokaverkefni 20 ECTS
=> BSc í byggingafræði 210 ECTS


Nánari upplýsingar veita:
Jón Guðmundsson, aðjúnkt jongud@ru.is  s.599 6572
Vilborg Hrönn Jónudóttir, verkefnastjóri, vilborg@ru.is  s.599 6255
Jens Arnljótsson, lektor og verkefnastjóri iðnfræðináms  jensarn@ru.is 

Skólagjöld


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica