Véliðnfræði

Í véliðnfræði er áhersla á véltæknilegar greinar, tölvuhönnun, rekstur og stjórnun fyrirtækja, ásamt hagnýtu lokaverkefni. Einnig er fengist við varmafræði, endurvinnslu, verkefnavinnu í raunumhverfi og notkun tölvuforrita við lausn verkefna. Í atvinnulífinu starfa véliðnfræðingar við fjölbreytt verkefni á verkfræðistofum svo sem við verkstjórn, framleiðslustjórnun, rekstur og stjórnun fyrirtækja á vélasviði. Enn fremur annast þeir eftirlit með framkvæmdum, vélbúnaði, tækjum í verksmiðjum, orkuverum og skipum.

,,Mér finnst kostur að iðnfræðinámið er kennt í fjarnámi, maður er þá frjálsari en þarf að skipuleggja sig vel.   Þetta er skemmtilegt og áhugavert nám, hef aldrei haft jafn mikinn áhuga og einmitt nú á því að læra og fræðast.
Þar sem þetta er fjarnám átti ég ekki von á því að það væri eitthvað  félagslíf, þess vegna kemur það mér mjög á óvart hvað maður kynnist mörgum og eignast góða félaga. Það líður varla sá dagur að ég heyri ekki í einhverjum sem er með mér í náminu.  Ég mæli hiklaust með þessu námi
."

Gisli-Gunnar-Petursson-VI-2Gísli Gunnar Pétursson, nemi í véliðnfræði
Námsgreinar í véliðnfræði      90 ECTS eininga nám         

AI BUÞ 1003

Burðarþolsfræði

AI TEI 1001

Tölvustudd teikning

 VI HON 1001

 Tölvustudd hönnun

AI REH 1003

Bókfærsla og reikningshald

VI VHF 1003

Vélhlutafræði

VI TEI 2013

Tölvustudd hönnun

AI STJ 1003

Stjórnun, rekstur og öryggi

RI STA 1003

Stafræn tækni

VI EFN 1003

Efnisfræði og framleiðslutækni

VI HUN 1003

Véltæknileg hönnun

VI VAR 1003

Varma- og rennslisfræði

AI FRK 1003

Framkvæmdafræði og verkstjórn

RI PLC 1003

Iðntölvustýringar og mælingar

AI LOG 1003

Lögfræði

VI LOK 1006

Lokaverkefni


 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica