BSc í íþróttafræði

23.3.2009

Einnig:

BSc í íþróttafræðiminnkud

Námið er þriggja ára fjölbreytt og krefjandi, fræðilegt og verklegt nám þar sem lögð er áhersla á að nemendur öðlist framúrskarandi þekkingu og færni til að miðla henni í kennslu, þjálfun, rannsóknum og stjórnun. Áhersla er lögð á íþróttir og hreyfingu sem mikilvægan þátt í forvörnum. Markmið kennslu í íþróttafræði í HR er að undirbúa verðandi íþróttafræðinga sem best undir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar hvort sem er í almennings- eða afreksíþróttum. BSc námið í íþróttafræði er jafnframt undirbúningur fyrir framhaldsnám.

Í náminu er lögð áhersla á  tengsl við  samfélagið og atvinnulífið. Kennarar sviðsins standa framarlega á alþjóðavettvangi á fagsviðum sínum og lögð er áhersla á að rannsóknir þeirra styrki kennsluna þar sem það á við.

Fjölbreytt atvinnutækifæri bíða íþróttafræðinga að námi loknu, til dæmis hjá skólum, æskulýðsfélögum, íþróttafélögum, fyrirtækjum, stofnunum, sveitarfélögum og heilsuræktarstöðvum. 

Athugið!  Inntökuprófið verður laugardaginn 2. júní 2012.

Sækja um nám: http://www.ru.is/namid/ertu-ad-spa-i-hr/saekja-um-i-hr/

Nánari upplýsingar veitir:
Erna Karen Óskarsdóttir , verkefnastjóri ernakaren@ru.is , s.599 6471.

Meistaranám í íþróttafræði

Hægt er að velja á milli tveggja námsleiða:

MSc Í ÍÞRÓTTAVÍSINDUM OG ÞJÁLFUN (Exercise Science and Coaching) – Framhaldsnám sem er ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í þjálfun keppnis- og afreksíþróttafólks og rannsóknum á sviði íþróttafræði.

MEd Í HEILSUÞJÁLFUN OG KENNSLU (Sport Education) – Framhaldsnám sem er ætlað þeim sem vilja sérhæfa sig í íþróttakennslu og lífsstílsfræðum á sviði heilsuræktar. Gráðan tryggir kennsluréttindi á öllum skólastigum.

Sund

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica