Verkfræðileg lífvísindi MSc

Meistaranám í verkfræðilegum lífvísindum er ætlað þeim sem hafa lokið BSc í raun- eða heilbrigðisgreinum og lýkur náminu með MSc í verkfræðilegum lífvísindum. 

Námið er þrískipt: kjarni, valsvið og lokaverkefni. Námið er 120 ECTS einingar og er skipulagt sem tveggja ára nám, eða alls fjórar annir. Allir nemendur taka bóklegt nám sem jafngildir a.m.k. einni önn og framhaldið fer síðan eftir áhuga- og valsviði hvers og eins. Lokaverkefnin eru ýmist unnin innan HR eða hjá samstarfsstofnunum skólans. Nemendur geta tekið hluta af námi sínu erlendis. Valnámskeið eru á fjölbreyttu formi (s.s. lesnámskeið, fjarnám og minni verkefni) og geta verið við Háskólann í Reykjavík sem og við innlenda og erlenda háskóla. 

 • Verkfræðileg lífvísindi. Þeir nemendur sem velja að ljúka námi með MSc í verkfræðilegum lífvísindum taka Málstofu og Aðferðafræði og síðan annað hvort Tölfræði eða Sameindalíffræði, ásamt nauðsynlegum undanförum eftir því sem við á. Í náminu er lögð áhersla á magnbundna nálgun. Rannsóknarverkefni eru 60 eða 90 ECTS einingar.

Dæmi um rannsóknir í heilbrigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík

  • Útbreiðsla samdráttar í legvöðva: hagnýting við greiningu yfirvofandi fyrirburafæðingar
  • Reiknirit í lífupplýsingafræði
  • Taugaverkfræði, notkun ígræðlinga og þróun aðferða til að endurhæfa aftaugaða fætur, líkanagerð til hönnunar á rafskautafylkjum og skipulagning á skurðaðgerðum
  • Taugalífeðlisfræði svefns: svefnþroski og hreyfiþroski, tölfræðileg lýsing á svefni, starfræn segulómun hýpokretín kerfisins, og ný dýralíkön
  • Stofnfrumulíffræði, vefjaverkfræði og frumumeðferð


Erlendir samstarfsskólar eru m.a.

  • University of Strathclyde, Glasgow, Bretlandi
  • Medizinische Universität Wien, Austurríki
  • Université Technologique de Compiègne, Frakklandi
  • MIT, Cambridge, Massachusetts, Bandaríkjunum
  • Brown University, Providence, Rhode Island, Bandaríkjunum

 

Samstarfsstofnanir innanlands eru m.a.

  • Landspítali - Háskólasjúkrahús
  • Blóðbankinn
  • Hjartavernd

 

Nánari upplýsingar

Jóhanna Fríða Dalkvist verkefnastjóri, johannafd@ru.is

Haraldur Auðunsson sviðsstjóri, haraldura@ru.is


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica