Á þessari síðu má finna helstu upplýsingar fyrir nemendur tækni- og verkfræðideildar, svo sem:
Námsáætlanir
Stundaskrár
Starfslotur
Forsetalisti
Hér má nálgast nánari upplýsingar um styrki í framhaldsnámi deildarinnar.
Nemendum er ráðlagt að lesa yfir náms- og framvindureglur deildarinnar og tileinka sér þær.
Reglurnar má finna hér fyrir brautir deildarinnar:
BSc í verkfræði
BSc í tæknifræði
BSc í íþróttafræði
Diplóma í iðnfræði og BSc í byggingafræði
MSc í verkfræði
Ef nemendur hafa einhverjar spurningar varðandi reglurnar er þeim bent á að hafa samband við verkefnastjóra. Jafnframt er nemendum bent á siðareglur HR og prófareglur HR.
Nemendur sem hafa tekið áfanga við aðra háskóla eða við aðrar deildir innan skólans geta sótt um mat á fyrra námi. Umsókn um mat á fyrra námi er komið til viðkomandi verkefnastjóra.
Stúdentaþjónustan/ námsráðgjöf HR býður upp á einstaklingsmiðaða og faglega þjónustu. Þar geta nemendur t.d sótt námskeið í námstækni og prófkvíða og tekið áhugasviðspróf.
Þeim nemendum sem langar að víkka sjóndeildarhringinn og fara í skiptinám til framandi landa er bent á að kynna sér málin hjá alþjóðasviði HR
Í almanaki HR eru allar nauðsynlegar dagsetningar fyrir nemendur skólans, próftímabil, útskriftir og skráningardagsetningar og að sjálfsögðu frídagar.
Bókasafn og upplýsingaþjónusta HR býður upp á alla almenna bókasafns- og upplýsingaþjónustu s.s útlán, millisafnalán og upplýsingaleitir auk sértækari þjónustu.
Ef einhverjar spurningar liggja á nemendum deildarinnar er þeim bent á að hafa samband við verkefnastjóra deildarinnar.
Brynjólfur Víðir Ólafsson, verkefnastjóri grunnnáms í verkfræði
Erna Karen Óskarsdóttir, verkefnastjóri grunnnáms í íþróttafræði
Kristín Kristinsdóttir, verkefnastjóri framhaldsnáms
Vilborg Hrönn Jónudóttir, verkefnastjóri í tæknifræði, iðnfræði og byggingafræði

