Hafi nemandi lokið námskeiðum á háskólastigi við viðurkenndan háskóla sem eru fyllilega sambærileg við þau námskeið sem í boði eru við HR gefst þeim kostur á að óska eftir því að fá þessi námskeið metin.
Sækja þarf um mat á fyrra háskólanámi á sérstökum umsóknareyðublöðum og koma til deildarfulltrúa TVD.
Til þess að fá námskeið metin þurfa þau, að mati námsmatsnefndar og kennara viðkomandi fags, að standast samanburð við sambærileg námskeið í HR.
Gögn sem þurfa að fylgja með umsókn:
- Umsóknin sjálf (prentuð út af netinu).
- Staðfest afrit af einkunnum frá viðkomandi háskóla
- Námskeiðslýsingar frá viðkomandi háskóla (þær þurfa að vera frá því ári sem námskeiðin eru tekin).
Umsækjendur geta almennt ekki átt von á því að námskeið sem tekin voru fyrir meira en 6 árum síðan eða námskeið sem umsækjandi fékk lægri einkunn en 6 fáist metin.
Upplýsingar fyrir nýnema:
Mat á fyrra námi er ekki framkvæmt fyrr en formleg umsókn um nám í HR hefur verið samþykkt og skólagjöldin hafa verið greidd.

