Vél- og orkutæknifræði
Yfirlit
Námið byggist á bóklegum námskeiðum og vinnu nemenda í raunhæfum verkefnum í tengslum við véla- og orkuiðnað, m.a. undir leiðsögn sérfræðinga úr atvinnulífinu. Lykilnámsgreinar eru burðarþolsfræði, tölvustudd hönnun, véltæknileg hönnun, varmafræði og stýri- og reglunartækni. Sjálfvirkni, hermun og bestun vinnslu- og orkuferla og aðgerðagreining er einnig stór þáttur í námi og störfum véltæknifræðinga.
Námstími: 3 1/2 ár í fullu námi
Einingar: 210 ECTS
Prófgráða: BSc
Starfsréttindi: Tæknifræðingur
Skiptinám mögulegt: Já
Fjarnám: Nei
Námsfyrirkomulag
|
1.önn
|
2.önn
|
3.önn
|
4.önn
Varmafræði Sveiflufræði Rennslisfræði Aðferðafræði Hagnýtt verkefni |
|
5.önn - valfög í sérhæfingu
Stýritækni Reglunarfræði Efnisfræði og vinnsla Straumvélar Verkefnastjórnun Rekstur, stjórnun og nýsköpun |
6.önn - valfög í sérhæfingu
Aðgerðagreining Hönnun Orkutækni Jarðhiti Kælitækni Rafmagnsvélar Orka í iðnaðarferlum Hagnýtt verkefni |
7.önn
Lokaverkefni Valfag |
Á 5. og 6. önn taka nemendur valfög og gefst þeim þá kostur á nokkurri sérhæfingu. Sérhæfingarsviðin eru tvö, véltæknileg hönnun og orkutækni. Nemandi sem velur a.m.k. 3 fög og vinnur auk þess lokaverkefni sitt á sérhæfingarsviði hlýtur prófskírteini þar sem fram kemur að hann hafi aflað sér sérþekkingar á sviðinu.
Einnig geta nemendur valið námskeið úr verkfræði, viðskiptafræði eða tölvunarfræði.
Starfssvið
Starfssvið véltæknifræðinga er fjölþætt, s.s. störf við stjórnun, eftirlit, ráðgjöf, hönnun og þróun. Þeir vinna m.a. á verkfræðistofum, í framleiðslufyrirtækjum og hjá orkufyrirtækjum. Framtíðartækifæri felast meðal annars í endurnýjanlegum orkugjöfum og sjálfbærri þróun, þ.m.t. virkjun vatnsorku og jarðvarma, nýting vetnis, lífmassa og efnarafala.
Inntökuskilyrði
- Stúdentspróf, frumgreinapróf eða sambærilegt próf
- Æskilegur undirbúningur:
Stærðfræði - 21 eining
Eðlisfræði - 6 einingar
Hafið samband
Frekari upplýsingar um nám í vél- og orkutæknifræði:
Vilborg Hrönn Jónudóttir, vilborg@hr.is, 599-6255
Indriði S. Ríkharðsson, ind@ru.is, 599-6436

