Í trúnaðarráði BSc náms í tækni- og verkfræðideild eiga sæti forstöðumaður grunnáms, verkefnastjórar tækni- og verkfræðideildar og trúnaðarmenn úr hópi nemenda. Trúnaðarráð er vettvangur umræðna og skoðanaskipta um gæði kennslu og framkvæmd námskeiða. Forstöðumaður grunnnáms kallar saman fundi tvisvar sinnum á önn að jafnaði. Trúnaðarmenn geta hins vegar alltaf leitað til forsvarsmanna ráðsins ef tilefni er til.
Fjöldi trúnaðarmanna í gæðaráði eru sex talsins, þrír koma úr tæknifræði og þrír úr verkfræði, einn af hverju námsári. Formenn stúdentafélaga tækni- og verkfræðideildar sjá um að skipa trúnaðamenn fyrir sína deild og tilkynna forsvarsmönnum deildarinnar nöfn þeirra í byrjun hverrar annar.
Hlutverk trúnaðarmanna:
- Trúnaðarmenn eru talsmenn nemenda.
- Trúnaðarmenn mæta á fundi með forsvarsmönnum námsins að meðaltali tvisvar sinnum á önn.
- Trúnaðarmaður upplýsir forsvarsmenn um framgang í námskeiðum deildarinnar og öðrum þáttum námsins.
- Trúnaðarmaður ber ábyrgð á því að koma skilaboðum samnemenda sinna til forsvarsmanna námsins.
- Trúnaðarmaður er bundinn trúnaði við sína samnemendur.
- Trúnaður verður að ríkja á milli trúnaðarmanns, samnemenda hans og forsvarsmanna námsins.
Trúnaðarmenn nemenda 2011-2012:
Svanborg Hilmarsdóttir, 1. ár rafmagnstæknifræði
Þuríður Ragnheiður Sigurjónsdóttir, 2. ár rafmagnstæknifræði
Guðmundur Þorsteinn Bergsson, 3. ár byggingatæknifræði
Ingólfur Jóhannsson, 1. ár fjármálaverkfræði
Margrét Guðmundsdóttir, 2. ár rekstrarverkfræði
Íris Rún Karlsdóttir, 3. ár rekstrarverkfræði

