Ragnar Ólafsson - Ultrasound Current Source Density Imaging (USCDI)
Fyrirlesturinn verður haldinn föstudaginn 25. september kl. 15:00 í húsnæði Háskólans í Reykjavík, Kringlunni 1 (gamla Mbl. húsinu) í stofu K-1.
Bio
Ragnar Ólafsson hlaut B.S. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands 2002. Árið 2002 hlaut hann Fulbright styrk til þess að stunda framhaldsnám í heilbrigðisverkfræði (e. biomedical engineering) við University of Michigan í Ann Arbor, Michigan, þar sem hann lauk doktorsprófi árið 2008. Hann vinnur fyrir Dr. Russell Witte í Department of Radiology við University of Arizona. Rannsóknasvið Ragnars eru myndun lífrafsviðs (e. biopotentials) með úthljóðsmyndtækni (e. ultrasound) og beitingu ljóshljóðsmyndtækni (e. photoacoustics) á hjartasjúkdóma.
Abstract
Taugaskurðlækningar krefjast í sumum tilfellum nákvæmnar kortlagnar á virkni heilans til þess að takmarka aukaverkanir. Núverandi kortlagningartækni, sem byggir á yfirborðs- og stungurafskautum, er tímafrek og hefur takmarkaða upplausn (5-10 mm). Þessi fyrirlestur mun lýsa “ultrasound current source density imaging” (UCSDI) tækni, svokallaðri, sem gæti hugsanlega bætt þessa aðferð. UCSDI byggir á rafhljóðshrifum (e. acousto-electric effect) og kortleggur rafsvið með úthljóðsmyndtækni (e. ultrasound). Hugsanlegir kostir UCSDI eru meðal annars góð upplausn sem afmarkast af brennidepli úthljóðsgeislans (<1 mm), hröð kortlagning með rafrænni stýringu úthljóðsgeislans og sjálfvirk samsvörun við venjulegar endurvarpshjóðmyndir (e. pulse echo ultrasound).
Í þessum fyrirlestri verður UCSDI tækninni lýst, beitingu hennar við kortlagningu á tvívíðu tvípólsrafsviði og til að nema virkjunarstrauma hjartans. Að lokum verður lýst nýjum tilraunum til þess að nema rafstrauma í taugum með hjálp þessarar tækni.

