Meistaranámskynning Tækni- og verkfræðideildar
Þriðjudaginn 17. nóvember, kl. 17-19 í Ofanleiti 2, verður kynning á meistaranámi tækni- og verkfræðideildar HR. Kennarar deildarinnar verða á staðnum, svara fyrirspurnum og kynna rannsóknarverkefni sín. Endilega kíkið við einhvern tíma á milli kl. 17 og 19 næstkomandi þriðjudag og skoðið hvað er í boði.
Umsóknarfrestur fyrir vorönn 2010 er til 30. nóvember.

