millimynd

Í Háskólanum í Reykjavík leggjum við áherslu á að skapa og miðla þekkingu í greinum þar sem stærstu tækifæri framtíðarinnar liggja – í tækni, viðskiptum og lögum. Tveir af hverjum þremur sem útskrifast úr háskólanámi í tæknigreinum koma nú frá Háskólanum í Reykjavík og um helmingur laga- og viðskiptamenntaðra.

 

Ertu að spá í HR?

Smelltu á eftirfarandi tengla til að kynna þér námleiðir í grunnnámi og í framhaldsnámi. Að auki er boðið upp á nám í frumgreinadeild og í Opna háskólanum. Opnað er fyrir almennar umsóknir í febrúar ár hvert og er umsóknarfrestur til 5. júní.

INNTÖKUSKILYRÐI

Stúdentspróf eða sambærilegt. Inntökuskilyrði eru þó breytileg eftir deildum og er nánari upplýsingar að finna hjá deildum skólans og undir inntökuskilyrði og fylgigögn.

NÁMSRÁÐGJÖF

Stúdentaþjónusta HR annast náms- og starfsráðgjöf innan HR. Sjá nánar um viðtalstíma.

ATVINNUÞJÓNUSTA HR

Hlutverk Atvinnuþjónustu HR er að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að finna hæfa framtíðarstarfsmenn í hópi núverandi og útskrifaðra nemenda skólans.

STÚDENTAFÉLAG HR

Stúdentafélagið (SFHR) Allir nemendur Háskólans í Reykjavík eru meðlimir í SFHR og eru félagsgjöld engin. Hver deild við skólann hefur sitt hagsmunafélag sem stendur vörð um hagsmuni félagsmanna sinna.

SKIPTINÁM VIÐ HÁSKÓLA Í ÚTLÖNDUM

Háskólinn í Reykjavík er í samstarfi við háskóla í Evrópu innan Erasmus-áætlunarinnar, Nordplus-áætlunarinnar og er jafnframt með tvíhliða samninga við háskóla utan Evrópu. Með þessum samningum gefst nemendum kostur á að taka eina eða tvær annir við samstarfsskóla HR og fá námið í gestskólanum metið sem hluta af námi sínu við Háskólann í Reykjavík. Sjá nánar.

SKÓLAGJÖLD ERU LÁNSHÆF HJÁ LÍN

Allt nám í Háskólanum í Reykjavík (að Opna háskólanum undanskildum) er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Sjá nánar um skólagjöld.

STYRKIR

Nýnemastyrkir fyrir afburðanemendur í grunnnámi
Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum nýnemastyrki á fyrstu önn þeirra við skólann. Styrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Allir nýnemar sem sækja um skólavist og eru með yfir 8,0 í meðaleinkunn á stúdentsprófi geta sótt um styrkinn.

Nýnemastyrkir í meistaranámi Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum sem hefja meistaranám styrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Meistaranámsstyrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er eingöngu veittur nemendum sem hefja nám á haustönn.

Forsetalisti HR Þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga kost á að komast á forsetalista og fá skólagjöld næstu annar niðurfelld.

Frumkvöðlasjóður Guðfinnu S. Bjarnadóttur Að stofnun þessa sjóðs standa Bakkavör Group, Viðskiptaráð Íslands og Háskólinn í Reykjavík og er honum ætlað að verðlauna þá nemendur Háskólans í Reykjavík sem leggja fram bestu viðskiptaáætlun í verkefnum innan skólans á ári hverju. 

Styrkir fyrir meistaranema í tækni- og verkfræðideild Nemendur í meistaranámi við tækni- og verkfræðideild geta sótt um aðstoðarkennarastyrki og að vera á launum þann tíma sem unnið er að meistaraverkefni í fullu starfi.

Styrkir fyrir nemendur í tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild Nemendur í tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild geta sótt um styrk í námssjóð Sameinaðra verktaka við Háskólann í Reykjavík. 

HÚSNÆÐISMÁL

Háskólinn í Reykjavík er aðili að Byggingafélagi námsmanna. Aðilar að SFHR eru sjálfkrafa aðilar að Byggingarfélagi námsmanna (BN) og Bandalagi íslenskra námsmanna (BÍSN). BN sér um byggingu og viðhald námsmannaíbúða sem standa nemendum HR til boða á nemendagörðum sem staðsettir eru víðsvegar um borgina.



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica