Upplýsingatæknisvið
Upplýsingatæknisvið
Upplýsingatæknisvið (UTS) ber ábyrgð á þjónustu, rekstri og þróun tölvukerfa HR í samræmi við upplýsingatæknistefnu HR.
Notendaþjónusta er aðgengileg á afgreiðsluborði virka dag milli 9:00-12:00 og 13:00-16:00. Beiðir má senda á hjalp@ru.is.
Reglur fyrir notendur tölvukerfis HR
Nemendur HR skulu hlíta notkunarskilmálum Isnets og RHnets, sjá http://rhnet.is/reglur.html, og reglum HR um notkun á neti og tölvukerfum skólans.
Reglur HR er notkun og umgengni við tölvubúnað og aðstöðu skólans eru sem hér segir:
- Nemendur hafa aðgang að tölvuverum skólans, svo framarlega sem þau eru ekki nýtt fyrir kennslu.
- Nemendur fá auðkenni (notendanafn og leyniorð) til að tengjast neti skólans og upplýsingakerfum og bera þeir ábyrgð á leynd þeirra. Nemendum er óheimilt að láta öðrum aðilum auðkenni sín í té. Auðkenni nemenda eru virk meðan þeir eru skráðir í nám í HR.
- HR áskilur sér rétt til að fara yfir, skoða og eyða gögnum og hugbúnaði á gagnasvæðum nemenda til að tryggja að reglum um notkun búnaðarins sé fylgt.
- Nemendum er óheimilt nýta búnað skólans til að brjóta á höfundarrétti. Óheimilt er að vista eða miðla ólöglegu efni á búnaði skólans.
- Óheimilt er að setja inn hugbúnað og breyta uppsetningum á tölvum í eigu skólans.
- Meðferð hvers konar matvæla og drykkja er stranglega bönnuð í tölvuverum.
Brot á þessum reglum geta leitt til lokunar á aðgangi að tölvukerfi HR, sé um alvarlegt eða endurtekið brot að ræða, getur það endað með brottvísun úr Háskólanum í Reykjavík.
Afgreiðslutími
Afgreiðslutími Upplýsingatæknisviðs, fyrir nemendur er 9:00-12:00 og frá 13:00-16:00 alla virka daga. Afreiðsla UTS er á fyrstu hæð í Sólinni.
Hjálparbeiðnir má einnig senda á hjalp@ru.is.
Neyðarsími tölvuþjónustu er 5996250ATH: Utan venjulegs skrifstofutíma sinnum við einungis neyðartilfellum.
