Doktorsnám

Með doktorsnámi er ætlunin að styrkja rannsóknir við viðskiptadeild samhliða því að þjálfa unga vísindamenn til hagsbóta fyrir íslenskt atvinnulíf og tryggja stöðu Háskólans í Reykjavík sem alþjóðlega viðurkennds háskóla.

Doktorsnám við viðskiptadeild þjálfar nemendur í beitingu vísindalegra vinnubragða við öflun og miðlun nýrrar þekkingar. Til þess að ljúka doktorsnámi þurfa nemendur að sýna fram á:

  • Almenna þekkingu á grunnatriðum viðkomandi fræðasviðs.
  • Sérfræðiþekkingu á sínu rannsóknarsviði.
  • Færni í beitingu vísindalegra vinnubragða.
  • Færni í að afmarka, móta og framkvæma sjálfstæðar rannsóknir.
  • Færni í að miðla niðurstöðum í ræðu og riti bæði á innlendum og erlendum vettvangi.
  • Sjálfstætt og viðurkennt framlag til þekkingarsköpunar á sínu rannsóknarsviði

Sjá nánari upplýsingar á ensku

.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica