Nova styrkir kennslu- og rannsóknarstöðu við HR

20.10.2009

 

Nova og Háskólinn í Reykjavík hafa framlengt samstarfssamning um vöxt og viðgang kennslu og rannsókna á sviði markaðsfræði við HR. Markmið samningsins er að efla markaðsfræði sem fag á Íslandi.

Nova styrkir kennslu- og rannsóknarstöðu við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Í því felst að á hverjum tíma er fastráðinn kennari kenndur við Nova stöðuna. Kappkostað er að vekja áhuga ungs fólks á námi í þessum fræðum og þeim starfsmöguleikum sem þau kunna að bjóða. Valdimar Sigurðsson gegnir stöðunni, en hann er dósent við Háskólann í Reykjavík og lauk árið 2007 doktorsprófi í markaðsfræði með áherslu á neytendasálfræði.

Nova og HR sameinast um ráðstefnur og vinnufundi á sviði markaðsfræði auk þess sem samningurinn tryggir stjórnendahópi Nova aðgang að endurmenntun í fræðunum í HR.

Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík, sagði við undirritun þessa samnings að hann fagnaði þessum áfanga, sem án vafa yrði til þess að efla kennslu og rannsóknir í markaðsfræði í Háskólanum í Reykjavík.

Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, segir samninginn ýta undir faglega endurmenntun og starfsþróun hjá Nova. Fyrirtækið hefur frá upphafi lagt áherslu á framúrskarandi árangur í þeim efnum að samstarfið við HR styrkir það enn frekar í þeirri viðleitni.

Frekari upplýsingar veitir Valdimar Sigurðsson hjá Háskólanum í Reykjavík.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica