Nemendur viðskiptadeildar í starfsnámi fá framtíðarstörf
Starfsnámi veturinn 2010 í viðskiptadeild er nýlega lokið með góðum árangri. Um helmingur þeirra nemenda sem áhuga höfðu, fengu tilboð um starf til framtíðar. Flest þeirra fyrirtækja sem buðu upp á starfsnám eru millistór og stærri fyrirtæki. Þau eru í ólíkum atvinnugreinum og það virðist ekki hafa skipt miklu máli þegar kom að tilboðum um framtíðarstarf. Jafnframt hafa fyrirtæki sem voru með nema í starfsnámi í haust, nýlega ráðið nema í framtíðarstarf. Nú er þegar hafinn undirbúningur fyrir starfsnám næsta haust og er eftirspurnin frá nemendum og fyrirtækjum mikil. Starfsnámið hefur þannig strax fyrsta árið sannað sig sem gagnlegur vettvangur bæði fyrir nemendur og fyrirtæki.

